Lindsay Lohan og mamma hennar fóru á djammið í gær en það endaði með því að þær fóru í slag. “Klassý”.
Mæðgurnar voru saman að djamma í New York en að sögn sjónarvotta rifust þær eins og brjálaðar á leiðinni heim til Dinu Lohan.
Þegar þangað var komið fóru þær í slag sem endaði með því að Lindsay stakk sig í fótinn með hníf, eða svo segir slúðurpressan í Glysborginni, en löggan sagði að þetta hefðu bara verið slagsmál og að engin lög hefðu verið brotin og hvorug þeirra var handtekinn.
En samt?
Dina Lohan er nýbúin að hegða sér mjög furðulega í viðtali hjá Dr. Phil og Lindsay reyndi að verja mömmu sína eftir það – en líklegast eru þær báðar bara verulega óstabílar.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.