Lindsay Lohan var ekki lengi að twitta nýjar myndir af sér og nýja hárlitnum sínum þegar tökum á myndinni Liz & Dick lauk eins og ég skrifaði um hér.
Á þessu ári hefur Linday skartað ansi mörgum háralitum allt frá því að vera platínuljóshærð, svarthærð og nú loksins aftur rauðhærð. Eitthvað hafa stanslaus litun og hárlengingar tekið sinn toll og er hárið ekki sjón að sjá núna. Skallablettir eru farnir að myndast í hnakkanum en á myndinni sést Lindsay fara í lagfæringu á hárgreiðslustofu.
Ef Lindsay heldur þessum tilraunum áfram þarf hún án efa að klippa vel af hárinu sínu þar sem miklar hárlengingar og stanslaus hárlitun fara aldrei vel með hárið, sama hvort þú átt heima í Hollywood eða ekki.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig