Leikkonan Lindsay Lohan er eins og áður sagði að leika í kvikmynd byggð á ævi Elisabeth Taylor.
Lindsay fannst meðvitundarlaus inn á herberginu sínu um helgina og var flutt með sjúkrabíl á spítlala þar sem að læknar kenndu of miklu álagi og ofþurrki um.
Lindsay lenti nýlega í bílslysi og hefur verið við upptökur fyrir myndirna fram á nótt.
Dina móðir hennar segir að Lindsay sé á batavegi og hún kenni fullkomnunaráráttu dóttir sinnar um, hún segir að dóttir sín vilji hafa allt fullkomið og það sé mikið álag á henni að þetta verkefni gangi vel.
Vonandi fer snótin að snúa blaðinu við og nær fullum bata!
____________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig