Leikkonan og vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan er komin með nýjan konfektmola sér við hlið.
Sá ‘heppni’ heitir Josh Chunn og er einkaþjálfari.
Josh er fyrrverandi klappstýra, afar “buffaður” og hugsar vel um útlitið. Josh vonast til að geta komið Lindsay á réttu brautina, hann er alls ekki mikill partýgaur og finnst fátt skemmtilegra en að fara í fjallgöngur og stunda útivist.
Josh talar reiprennandi kínversku en hann er af kínversku bergi brotinn-ætli að hann fari að kenna Lindsay?
Kæróinn er árinu yngri en Lindsay og er ekki að sækjast eftir peningum eða frægð leikkonunnar- hann segist vinna fyrir sínum launum og vinni vel fyrir þeim.
Jamm og jæja, ætli að þetta samband endist í viku eða meira? Við skulum vona að Lindsay haldi aðeins í þennan hönk og reyni að rétta betur úr kútnum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig