Það er aldrein lognmolla í kringum Lindsay Lohan, nú nýlega fór mamma hennar í viðtal hjá hinum eina og sanna Dr.Phil og það er óhætt að segja að Dina hafi komið ansi illa úr viðtalinu.
Dina er öll uppstríluð og fín í viðtalinu en þegar hún byrjar að tala þá er eins og hún sé hálfpartinn út úr heiminum, hún bullar og babblar, gefur myndavélinni puttann og gefur engin skýr svör þegar Dr.Phil spyr hana um eitthvað.
Lindsay er ekki sátt við doktorinn og hefur hafið ” Twitterstríð ” gegn honum eins og það kallast í Ameríku. Á Twitter skrifaði hún meðal annars :
“Dr.Phil þú ættir að skammast þín, hvers konar maður notfærir sér konu þegar hún er sem viðkvæmust. Þú ert svikari!
Ummælin hafa verið tekin af twitter síðu Lindsay en hún setti síðar inn aðra færslu:
“Í síðasta tísti mínu var ég að tala um mína fallegu, ótrúlegu, hæfileikaríku, sterku mömmu @dinalohan”.
Svo er bara stóra spurningin -hversu langt á þetta eftir að ganga? En sagan er ekki öll því það var ráðist á Lindsay á hótelherbergi hennar í New York um helgina. Hún hlaut einhverja áverka en var ekki flutt á spítala og árásarmaðurinn var handtekinn en sleppt að yfirheyrslum loknum.
Hér að neðan getur þú séð brot úr viðtalinu sem Dr.Phil tók við Dinu.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=42187_6z8nU[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig