Michael Lohan, pabbi Lindsay, mætti með fríðu föruneyti á tröppurnar hjá dóttur sinni og ætlaði að framkvæma svokallaða “intervention” (inngrips) meðferð á Lindsay og senda hana í meðferð.
Lindsay hélt nú ekki, var ekki lengi að hringja á lögregluna og hleypti pabba sínum og fylgdarliði ekki inn fyrir hússins dyr.
Michael heldur því fram að Lindsay sé fallin en hún þvertekur fyrir það. Hinsvegar hefur hún ekki mætt í vinnu við kvikmyndina Canyons ásamt því að hún lenti í frægum slag við mömmu sína í síðustu viku.
Lindsay er handviss um að pabbi hennar sé að þessu öllu saman vegna þess að hún hefur slitið á öll bönd við hann eftir að hann tók upp rifrildi sem Lindsay átti við mömmu sína Dinu og upptakan rataði inn á slúðursíður.
Lindsay er bara búin a fá nóg af ráðsmennsku og fölskum forsendum Michaels og segir hann vera ekkert annað en athyglissjúkan tækifærisinna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig