Lindsay Lohan varð fyrir bakslagi á dögunum þegar hún var ákærð fyrir að hafa logið að lögreglunni.
Lindsay lenti í árekstri þegar hún var að taka upp sjónvarpsmyndina “Liz & Dick” en aðstoðarmaður hennar sagðist hafa verið undir stýri og tók á sig sökina. Seinna meir komu vitni til sögunnar sem sögðu að Lindsay hefði verið undir stýri en ekki aðstoðarmaður hennar.
Ákæran er vegna lyga gegn lögreglunni og glæfralegs aksturs.
Lindsay er á skilorði til maí 2014 vegna ölvunaraksturs og fyrir að hafa stolið hálsmenum. Dómari sem dæmdi í máli gegn henni í mars síðastliðnum varaði hana við og sagði henni að halda sig á beinu brautinni og ef hún skyldi brjóta einhver lög á meðan á skilorðinu stendur gæti hún endað í fangelsi!
Með þessu áframhaldi er Lindsay á hraðleið á bakvið lás og slá!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig