Hrakfarir Lindsay Lohan í lífinu halda áfram og ekki sér fyrir endann á! Leikkonan var handtekin fyrir að hafa ekið á mann og keyrt af vettvangi fyrir utan hótel sem hún dvelur á í New York.
Vinur Lindsay skaust út úr bílnum og ályktaði að það væri allt í lagi með bílinn hennar (ekki manninn), skellti sér aftur inn í bíl og Lindsay keyrði í burtu.
Eftir hálftíma eða svo mætti Lindsay aftur á hótelið og þar var hún handtekin og tekin inn til bókunar, hún var síðan látin laus eftir skýrslutöku. Handtakan gæti leitt til þess að dómari meti sem svo að hún hafi brotið skilorðið sem hún afplánar núna.
Nýjustu fregnir herma að Lindsay ætli að fara í meðferð en það yrði þá í sjötta skiptið sem leikkonan skráir sig á meðferðarstofnun en hún hefur verið dugleg í næturklúbbalífinu undanfarið og vitni segjast hafa fundið áfengislykt af henni.
Lindsay, Lindsay, Lindsay, kannski er hún hrædd um að Amanda Bynes steli af henni sviðsljósinu, lestu nánar um það hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig