Vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan er við tökur á kvikmyndinni Scary Movie 5 þessa dagana og hefur kvartað yfir slappleika undanfarna daga.
Fáir virtust taka mark á dömunni þegar hún var að kvarta en hún hóstaði og var kvartandi allan daginn og hefur reynt að gera hvað sem er til þess að sleppa við að mæta á tökustað.
Þetta endaði svo með því að hún var flutt með sjúkrabíl á Bráðamóttöku í New York þar sem hún fékk sýklalyf og var sagt að taka því rólega á næstunni. Einhverjar sögur voru uppi að leikkonan væri með lungnabólgu en fjölmiðlafulltrúi hennar segir að hún hafi einfaldlega fengið slæmt astmakast.
Við skulum vona að hún fari að hægja á sér í næturlífinu og einbeiti sér að framanum en Lindsay lenti nýlega í vandræðum þegar hún var handtekin, þú getur lesið nánar um það hér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig