Þá er tökum lokið á myndinni Liz & Dick og var Lindsay Lohan ekki lengi að losa sig við svarta háralitinn og skartar nú rauðum lit sem er hennar litur.
Framleiðandi myndarinnar sagði að tökum væri lokið og að Lindsay hefði staðið sig eins og fagmaður og allt hefði gengið vel -sem eru góðar fréttir fyrir snótina þar sem að hún er þekkt fyrir að vera með uppsteyt og vesen á tökustað.
Lindsay var varla komin úr litun þegar hún smellti mynd af nýja hæaralitnum á Instagramið sitt.
Eftir að lituninni var lokið dreif hún sig á djammið fram á nótt en við skulum nú vona að hún sé ekki að fara í sama gamla farið. Byrji bráðum að haga sér vel og róast niður.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig