Lindsay Lohan og mamma hennar mættu vel brúkusprautaðar í brúðkaupið til Kim Kardashian en Kim er nú að gifta sig í annað sinn (and counting…)
Skömmu áður en þær mættu til vígslunar gerðu þær sig klárar inni á hótelherbergi og smelltu nokkrum myndum af í leiðinni. ‘Dresskódið’ í brúðkaupinu var annaðhvort hvítt eða svart og auðvitað valdi Lindsay hvítt. Hún er jú svo ‘clean og sober’ þessa dagana.
Lindsay Lohan er kannski ein af þeim sem ofnotar brúnkukremin en það verður ekki af þessum mæðgum tekið að þetta eru flottar konur. Vonum bara að Lindsay fari að hætta í ruglinu.
Kíktu í albúmið til að sjá Lindsay gera sig klára og svo nokkrar frekar misheppnaðar papparazzi myndir úr brúðkaupinu.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.