Amanda Bynes (26) er fyrrverandi barnastjarna en hún var með sjónvarpsþátt á sjóvarpsstöðinni Nickelodeon.
Amanda hefur nú fetað í fótspor Lindsay Lohan sem nýjasti vandræðagemlingur glysborgarinnar – barnastjarna “gone bad”.
Í apríl síðastliðnum var hún handtekin fyrir að keyra undir áhrifum áfengis en síðan er hún búin að lenda í nokkrum árekstrum þar sem hún hefur ekið af vettvangi og það hafa náðst myndir af henni að reykja gras í bílnum sínum. Hún hefur verið svipt ökuréttindum og ökutækið tekið af henni svo fátt eitt sé nefnt.
Amanda átti að fara í meðferð en hætti við það og ætlar að mæta í réttarhöldin sem verða þann 27.september næstkomandi. Lindsay Lohan ku vera æf yfir því hversu milda meðferð Amanda fær á meðan hún sjálf þurfti að ganga í gegnum réttarhöld og ýmislegt annað fyrir sín brot -sem voru meðal annars að keyra undir áhrifum.
Frændi Amöndu segir hinsvegar að hún þurfi á hjálp að halda, hvort sem það er að fara í meðferð eða með hjálp lækna og annara sérfræðinga. Hvað gerist næst?… spennan magnast…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig