“I always battle with…how much do I reveal about myself?”
Það verður að segjast að það eru fáir jafn einbeittir og metnaðarfullir í Hollywood og Beyoncé Knowles.
Þann 16. febrúar á þessu ári kemur út heimildarmynd frá HBO þar sem við fáum að skyggnast inn í líf þessarar mögnuðu söngdívu á þann hátt sem við höfum aldrei fengið áður.
Það sem á víst að koma mest á óvart í myndinni er hversu opin hún er um kvíðann og óttann sem fylgir því að vera stöðugt í sviðsljósinu.
Það er auðvelt að gleyma því að þrátt fyrir að hafa náð eins miklum árangri í lífinu og hún hefur gert og þrátt fyrir þessa miklu náðargáfu sem hún býr yfir að í enda dagsins er hún eins og hver önnur manneskja.
Aðdáendur hennar eru spenntir að sjá hvernig stjarnan er í sínu hversdagslega umhverfi og hvernig henni tókst að fela þungun sína eins lengi og hún gerði.
Beyoncé leikstýrði myndinni auðvitað sjálf enda með puttana í öllu sem hún lætur frá sér.
[youtube]http://youtu.be/prkDKl6qWNA[/youtube]
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.