Vandræðagemlingurinn Lindsay Lohan hefur enn og aftur komið sér í vandræði og skilorð hennar gæti verið í hættu vegna þess.
Fyrr á árinu lenti Lindsay í árekstri á Porsche bifreið sinni. Að hennar sögn var hún ekki undir stýri en sjónarvottar af slysinu segja að hún hafi sjálf verið undir stýri en ekki vinur hennar.
Sagt er að Lindsay og hennar fólk hafi mútað ökumanninum sem þau klesstu á til þess að hann færi ekki með málið til lögreglunnar þar sem Lindsay er enn á skilorði. Hennar fólk neitar öllum ásökunum og segir að ökumanninum hafi ekki verið mútað og að Lindsay hafi ekki verið undir stýri.
Skilorð leikkonunnar er í hættu vegna þessa máls en ef niðurstaðan er sú að hún hafi logið þá gæti hún lent á bakvið lás og slá.
Jæja-hvar endar þetta með hana Lindsay? Ætli að það væri best fyrir hana að fá einhvern til þess að sjá um allt fyrir sig og takmarka síma og netnotkun hennar eins og gert er við Britney Spears?
Britney er allavega komin á réttu brautina eftir að pabbi hennar og unnusti tóku öll hennar mál að sér en Lindsay er ekki jafn heppin og Britney þar sem hennar nánasta tengslanet er ekki jafn sterkt.
Pabbi hennar hugsar bara um athyglina og mamma hennar er í tómu tjóni. Við skulum vona að málin fari að lagast hjá fyrrverandi barnastjörnunni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig