Söngkonan Lady Gaga er búin að eignast nýja vinkonu og hún er engin önnur en sjálf Donatella Versage.
Gaga og Donatella ákváðu að “hanga” aðeins saman þegar Gaga var í Mílanó á dögunum og að sjálfsögðu var hinn umdeildi vinur Gaga, ljósmyndarinn Terry Richardson, með í för.
Lady Gaga kíkti einnig í heimsókn til Gianni Versage en hann er bróðir Donatellu. Lafðin var ekki lengi að “Twitta” um hvað væri í gangi og hún sagði á Twitter síðunni sinni;
“Er stödd í íbúð Gianni Versage í MILAN. Terry náði öllu saman á mynd, þetta er draumi líkast. Ég grét allt kvöldið.”
Snillingur…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig