Söngkonan Lady Gaga og stórsöngvarinn og goðsögnin Tony Bennett hafa ákveðið að gefa saman út plötu.
Dúóið söng saman á innsetningarhátíðarballi forseta Bandaríkjanna nú fyrr í vikunni og áður hafa þau tekið saman upp lagið “The Lady is a Tramp”.
Gaga sagði á Twitter síðunni sinni áður en þau sungu á hátíðinni að myndarlegi maðurinn sem hún ætlaði á stefnumót með væri mættur og hún hreinlega gæti ekki beðið eftir að gefa út plötu með honum!
Tony hefur sagt að Lady Gaga sé einfaldlega sú stærsta í bransanum og sú besta, hann hafi aldrei hitt neinn listamann með jafn mikla hæfileika og Gaga sjálf.
Til stóð að Amy heitin Winehouse og Bennett gæfu út plötu saman en Amy var mikill aðdáandi hans.
Það verður spennandi að sjá hvaða söngsnilld kemur frá þeim Gaga og Tony en hér að neðan getur þú hlustað á lagið þeirra “The Lady is a Tramp”
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ZPAmDULCVrU[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig