Lady Gaga fer ekki ótroðnar slóðir í fataveli en söngkonan er stödd í London þessa dagana og gerir að vanda hvað sem er til þess að fá athygli.
Gaga var að ganga út af hótelinu sínu um helgina og klæddist engu öðru en brúðarkjól sem virtist sýna meira af brjóstaskoru en flestar gera. Gaga fór síðan og skemmti sér á næturklúbb með Rihönnu…
Gaga hélt tónleika um helgina í Bretlandi og söng fyrir Díönu prinsessu, hún sagði síðan að Díana prinsessa hafi alltaf verið “idol” mömmu sinnar og hún hafi verið harðákveðin í því að votta henni virðingu sína ef hún myndi halda tónleika í London.
Kannski að Gaga vilji vera prinsessa líka?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig