Söngkonan Lady Gaga heldur áfram að hneyksla lýðinn. Nýjasta uppátæki hennar var að mæta nánast ber úr flugi í Los Angeles, að minnsta kosti svo fáklædd að eftir því var tekið.
Daman er búin að vera á fullu að koma fram á tónleikum í Asíu og Ástralíu en er komin til baka til Los Angeles núna og já við skulum segja að hún hafi gert það með “stæl”.
Eins og myndirnar sýna er hún ekki mjög dúðuð og heldur greinilega að sokkabuxurnar séu buxur -en ekki hvað?
G-strengurinn sést vel og lafðin er einungis í brjóstahaldara innan undir leðurjakkanum. Til að bæta gráu ofan á svart gefur hún svo papparössunum löngutangirnar og virðist ekkert kippa sér upp við það að hún hafi ‘gleymt’ að klæða sig.
Koma söngkonunnar á flugvöllinn olli það miklu fjaðrafoki að hún þurfti að fá lögreglufylgd í bílinn sinn.
Hér að neðan má sjá myndirnar – það er óhætt að segja að þær skilji lítið eftir fyrir ímyndunaraflið…
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig