Vinkonurnar Lady Gaga, Lindsay og Lana ákváðu að eyða góðri kvöldstund saman á hótelinu Château Marmont þar sem þær spjölluðu, spiluðu borðspil enduðu kvöldið á að horfa á gamlar kvikmyndir og gista!
Söngkonurnar eru allar 26 ára og eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær hafa allar mikinn áhuga á tattúum og skarta nokkrum á líkömum sínum, sækjast í “bad boy” týpurnar og hafa brennandi áhuga á tísku. Svo eru þær frekar flippaðar.
Á stelpukvöldinu twittaði Lady Gaga mynd af Agúrku og skrifaði undir
“Hvað er hugsanlega hægt að gera við þetta”?
Myndin var fjarlægð af stjórnendum og siðgæðisvörðum á Twitter.
Svo er bara spurning hvort þessi vinskapur á eftir að þróast eitthvað áfram, kannski taka þær lagið fyrir okkur einhvern tímann? Tríó.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig