Lady Gaga er fræg fyrir að láta flest allt flakka þegar hún er í viðtölum og virðist ekki fera feimin að tala um nekt eða bara yfirleitt hvað sem er.
Gaga sagði í viðtali fyrir stuttu að henni liði best þegar hún er allsber í freyðibaði – þá er hún bara hún sjálf, engar hárkollur, búningar eða farði. Bara gamla góða Stephanie Germanotta (hennar raunverulega nafn). Lady Gaga kallar það að vera í “baðfötunum” þegar hún liggur og slakar á í heitu freyðibaði.
Þrátt fyrir vinsældir sínar segist Gaga vera bara ósköp venjuleg stelpa sem spái í því alla daga í hverju hún eigi að að vera og hvernig hún líti út. Eins og við hinar gerum dags daglega.
OF FEIT?
Lady Gaga var gagnrýnd harðlega fyrir stuttu þegar hún bætti á sig nokkrum kílóum en það sem henni fannst þó hallærislegast af öllu var þegar það kom í fréttunum að hún hefði fitnað, ekki bara slúðurfréttunum, heldur ALVÖRU fréttum.
Gaga segir það hafa verið fáránlegt þar sem stríð og annað mikilvægara ætti að vera í fréttum og hvaða skilaboð er verið að senda til ungra kvenna með því að koma með svona frétt?
Mamma hennar hringdi í hana eftir að hún sá fréttirnar í hálfgerðu sjokki en Gaga segir að sér hefði verið alveg sama og fólk megi smjatta og slúðra um sig eins og því sýnist.
Gaga dýrkar og dáir Adele en söngkonan er með mjúkar línur og fagnar þeim. Gaga segir að hún þurfi að fara að taka Adele sér til fyrirmyndar og læra það að vera sátt í eigin skinni. Eitthvað sem við hinar mættum líka taka til fyrirmyndar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig