Söngkonan Lady Gaga slakar á í Puerto Rico á meðan á heimstúrnum hennar stendur.
Gaga er sem stendur á fullu í tónleikaferð sinni “Born This Way” og ákvað að slaka aðeins á við sundlaugarbakkann með vinum sínum í sólinni enda hefur verið uppselt á alla tónleika hjá henni og áhorfendur farið alsælir heim þegar tónleikunum lýkur.
Lafðin skartaði frekar fyndnu bikiní eða Miller bjórs bikiní sem var silfurlitað og vakti mikla athygli.
Lady Gaga heldur áfram hvatningu sinni til ungra kvenna á tónleikaferð sinni með líkamsímynd sína en Gaga segist sátt með líkamann sinn núna-enda er hún frábær eins og hún er – kíktu á myndirnar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig