Lady Gaga sem hingað kemur á morgun til að taka við friðarverðlaunum Yoko Ono vegna starfa í þágu samkynhneigðra og transfólks gubbaði á sviðinu þar sem hún hélt tónleika í Barcelona í gær.
Stóra spurningin er hvort þetta var sviðsett eða hvað? En líklegast ekki. Hún virðist hafa fengið sér vel af rauðvíni áður en hún stökk upp á svið því bunan er þannig á litinn, en hver veit – kannski bara Ribena?
Það er greinilega álag að vera í hennar bransa. Vonandi gerist ekkert svona í Hörpunni á morgun þegar daman tekur á móti verðlaununum frá Jóni Gnarr og Yoko…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=Rc635fevU-E[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.