Lady Gaga lenti svolítið illa í því um daginn þegar hún pósaði í myndatöku fyrir Vanity Fair um helgina.
Lafðin var greinilega svöng og vildi skella í sig einni með öllu en það fór ekki betur en svo að daman flaug á hausinn með pylsunni og öllu með. Henni tókst þó að halda pylsunni í skefjum og gat fengið sér bita þegar hún var lent á stéttinni.
Hún var auðvitað í enn einum búningnum sem virtist hannaður í öðru sólkerfi og á einhverjum skóm sem voru ekki skór heldur eitthvað sirkus dót. Heppin samt að hafa svona tvo vaska lífverði með sér sem gripu hana á leiðinni niður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lafðin flýgur á hausinn en hún datt eftirminnilega á Heathrow flugvelli síðasta sumar þar sem hún skakklappaðist á einhverjum stultum.
Hér sérðu skemmtilegar myndir af þessu rugli:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.