Söngkonan Lady Gaga er enn á fullu á tónleikaferðalagi en áhorfendum brá heldur betur þegar þeir sáu hana á tónleikum í Amsterdam í vikunni. Daman hefur bætt um 13 kílóum á sig.
Lady Gaga sagði í útvarpsviðtali um daginn að hún væri búin að bæta töluvert á sig og kennir ítalskri arfðleið sinni um, hún elskar pasta og pítsur og þegar hún er á tónleikaferð verða máltíðirnar hennar oft óreglulegar og hún grípur það sem er hendi næst.
Pabbi hennar á veitingastað í New York og að sögn Gaga þá forðast hún að fara í heimsókn til pabba síns þar sem hún stendur á blístri á meðan.
Gaga er svo slétt sama yfir öllu fárinu um “kílóin” og segir að hún sjái ekki eftir neinu -en hún sé þó í megrun núna. Hana langaði bara aðeins að njóta lífsins og fá sér gott að borða (hverjum þykir ekki gott að borða góðan mat?) því hún hefur verið á mjög ströngu mataræði undanfarin ár.
Einhverjir vilja meina að þetta sé óheilbrigðum lífstíl hennar að kenna en söngkonunni finnst ekki leiðinlegt að fá sér vodka og viskí – og eins og flestir vita þá er áfengi mjög hitaeiningaríkt.
Við skulum bara vona að Lafði Gaga geti í framtíðinni farið hinn gullna meðalveg í framtíðinni og fengið sér gott að borða án þess að kyngja pizzunni niður með viskýglasi.
_______________________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig