Channing Tatum, hinn nýkjörni kynþokkafyllsti karlmaður ársins hjá People Magazine, á von á sínu fyrsta barni með eiginkonu sinni Jennu Dewan-Tatum.
Jenna (32) mætti á sunnudagskvöldið á VH1 Divas sýninguna og þar skartaði hún nettri barnakúlu og strauk um magann á meðan hún var í viðtölum.
Jenna sleppti öllum áfengum drykkjum um kvöldið og geislaði eins og oft er sagt um konur þegar þær eru óléttar.
Þetta er fyrsta barn þeirra hjóna og eru þau að vonum alsæl með það.
Kannski að þetta sé ástæðan fyrir því að Channing Tatum ætlar að taka sér frí frá leiklistinni?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig