Það er óhætt að segja að Orlando Bloom sé einn sá heppnasti í Hollywood því eiginkona hans Miranda Kerr er stórglæsileg.
Ofurfyrirsætan leikur sér á myndum fyrir brúðarlínu VIctoria’s Secret undirfatarisans og þar klæðist hún glæsilegum undirfötum frá korsilettum til krúttlegra kjóla.
Þegar Miranda er spurð að því hvernig hún haldi sér í formi segist hún borða hreinan og hollan mat, hún lítur á mat sem bensín fyrir líkamann og þar sem við verðum að nærast sé mikilvægt að líkaminn fái aðeins það besta — en þó verður maður að passa sig að borða hæfilega og ekki of mikið, allt er gott í hófi.
Miranda segir einnig að hún sé mjög aktíf með syni þeirra hjóna, hún leiki mikið við hann og hlaupi út um allt á eftir honum. Fyrirsætan stundar einnig jóga en hún dásamar það og lofar. Miranda segir að það hjálpi líkamanum að tóna sig fallega og línurnar verði einfaldlega fallegri, einnig er jógað gott fyrir líkama og sál.
Þar höfum við það. Borða hollt, stunda jóga og leika við börnin, spurning hvort maður fái samt ofurfyrisætukropp ef maður gerir það sama og hún?
Nei, hugsanlega ekki en gömul vísa er aldrei of oft kveðin og allt er gott í hófi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig