Kylie og Kendall Jenner voru aðeins 10 og 12 ára gamlar þegar raunveruleikaþáttur fjölskyldunnar “Keeping Up With The Kardashians” hófst. Stúlkurnar sem eru á hraðri leið að vera ofurfyrirsætur segja í nýjasta tímariti Glamour ekki muna eftir lífinu öðruvísi en að myndavélar elti þær út um allt.
Þær segjast þó meta allt sem þær hafa og eiga eftir að þátturinn byrjaði og þær hafa fengið hin ýmsu tækifæri vegna hans sem þær hefðu annars ekki fengið. Þær viðurkenna þó að lífið sé ekki alltaf dans á rósum og þær geti ekki Instagrammað mynd án þess að fá þúsundir ummæla og stór hluti þeirra eru niðrandi ummæli um þær eða fjölskyldu þeirra.
Systurnar segja að fjölskyldan sé nánari vegna þáttarins og að þær séu þakklátar fyrir að hafa hann í lífi sínu vegna þess að myndavélarnar ná atvikum sem þær hefðu annars gleymt. Þær segja einnig að fólk haldi að það þekki þær því það horfir á þáttinn en raunin er sú að fólk sér bara brot af því sem er að gerast í lífi þeirra og fólk þekki ekki allar hliðar þeirra.
Systurnar ítreka það að þær eru ekki Kardashian heldur eru þær dætur pabba síns og beri Jenner nafnið með stolti en stóru systur þeirra sem eru Kardashian séu þó mjög duglegar að hjálpa þeim að takast á við hið daglega líf og öllu því sem þarf að tækla vegna frægðarinnar. Khloé er sáttasemjarinn, Kourtney heldur þeim niðri á jörðinni og Kim kennir þeim hvernig á að takast á við frægðina.
Systurnar eiga fullt af hálfsystkinum sem þær leita einnig til og Rob bróðir þeirra hringir í þær þrisvar sinnum á dag til þess að athuga hvernig þær hafi það á meðan að Lamar sem er eiginmaður Khloé vilji fá að hitta alla strákana sem þær fara á stefnumót með. Systurnar eru í heimaskóla þar sem að þær geta verið kallaðar til að sinna hinum ýmsu fyrirsætustörfum víða um heiminn en Kendall fór til Ástralíu fyrir stuttu síðan til þess að mynda tískuþátt.
Ó hið flókna líf raunveruleikastjarnanna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig