Söngkonan Kylie Minogue er forsíðustúlka ELLE tímaritsins sem von er á í næsta mánuði, Kylie talar meðal annars um aldurinn, krabbameinið og lýta, eða fegrunaraðgerðir.
Kylie er reynd í “bransanum” og þegar kemur að aldri segist hún alveg finna fyrir því að hún sé að eldast. Hún lítur oft í spegilinn og sér að þyngdaraflið er ekki að vinna með sér, sumt sé á niðurleið. Henni finnst þó skelfilegast þegar hún sér mynd af sér þegar hún spjallar við einhvern á Skype því þá minni hún sig á hryllingsveru úr kvikmynd eftir Steven Spielberg!
Kylie hefur barist við brjóstakrabbamein en er á batavegi núna og hefur ekki greinst aftur. Hún segist ekki hafa farið í lýtaaðgerð eftir að brjóstin voru tekin og viti ekki hvort hún muni láta verða af því að fara í slíka aðgerð.
Kylie bendir á að við séum alltaf að gera “smáaðgerðir” á okkur á hverjum degi með því að farða okkur og hún ætli ekki að vera með neina hræsni eða vera á móti aðgerðum sem bæta útlitið þar sem hún gæti endað í slíkri sjálf og útkoman orðið góð.
Hún segist einnig ekki vera á móti fegrunaraðgerðum yfir höfuð þar sem að þær geti breytt lífi fólks til hins betra.
Það koma margar konur að máli Kylie sem hafa einnig barist við brjóstakrabbamein og segja henni sögu sína. Kylie segir að hún taki yfirleitt utan um þær vegna þess að hún veit hvernig þeim líður og öfugt
Henni finnst hún afar náin hverri og einni sem hefur verið í sömu sporum og hún, þær skilja hvor aðra svo vel.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig