Kylie Minogue hefur verið í bransanum í 25 ár en hún byrjaði feril sinn sem leikkona í hinni sívinsælu sápuóperu Nágrannar en fór út í sönginn eftir að hún hætti að leika í sápunni.
Kylie setti inn mynd af sér í bleikum kjól á Twitter síðuna sína og skrifaði við hana “hello pink” eða halló bleikur.
Hönnuðurinn Michelle Smith var afar ánægð með tístið og sagði við myndina “Gordjöss Kylie! Þessi kjóll klæðir þig frábærlega, takk kærlega fyrir”.
Kylie tekur margar ungar söngkonur í nefið en hún lítur frábærlega út og er góð fyrirmynd. Kylie hefur sigrast á brjóstakrabbameini og er dugleg að tala um sjúkdóminn og fræða konur um hann og hvetur þær eidregið til að skoða brjóstin sín og fara í skoðun.
Kylie er enn þann dag í dag mjög vinsæl og vinsældir hennar hafa haldist í heimalandinu hennar Ástralíu í öll þessi 25 ár en hún kemur reglulega fram á tónleikum þar og í Bretlandi þar sem hún er jafnframt geysivinsæl.
Þá er það bara stóra spurningin hvort að ný plata sé væntanleg frá henni, ég veit ekki með ykkur en ég bíð spennt eftir að fá að heyra nýja tónlist frá henni!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig