Samband leikkonunnar Milu Kunis og leikarans Ashton Kutcher virðist vera sterkara með hverjum deginum en parið kynntist þegar þau léku saman í þáttunum “That 70’s show”.
Mila og Ashton fóru saman í morgungöngu með hundinn um daginn og voru afslöppuð í íþróttafötunum sínum með kaffimál í hendinni. Þau létu sem papparassarnir væru ekki á staðnum, skelltu hettunum yfir höfuðið og hundsuðu þá.
Parið er nýkomið frá Iowa en Ashton er þaðan og þau eyddu jólunum þar saman.
Ashton var afar spenntur að fara með Milu á heimaslóðir sínar til að kynna henni fyrir fjölskyldunni og parið náði að slaka á og safna orku þar. Ashton finnst víst voðalega gott að komast á æskustöðvarnar þar sem að hann fær frið fyrir papparössum og ágengum blaðamönnum og getur verið hann sjálfur með sínum nánustu.
Skilnaður hans við Demi er kominn á fullt skrið núna og það er aldrei að vita nema að Ashton skelli sér á skeljarnar og biðji Milu um hönd hennar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig