Kryddpíurnar eru í óðaönn að leggja lokahönd á söngleikinn sinn “Viva Forever”
…og í gærkvöldi, þann 11.desember var haldið svokallað “press night” þar sem a fjölmiðlar og gagnrýnendur fengu að sjá söngleikinn á undan öðrum.
Kryddpíurnar voru allar á svæðinu og mættu VIctoria og David Beckham saman ásamt drengjunum sínum Romeo, Cruz og Brooklyn en hjónin eru nýkomin til Bretlands eftir að David hætti að spila með LA Galaxy í Bandaríkjunum.
Eitthvað virtist Victoria taka þessu alvarlega en hún hefur lengi verið að reyna að þvo kryddpíustimpilinn af sér.
Smelltu hér til að skoða myndir af skelfilegum fatastíl kryddpíanna í gamla daga.
Mel B, Emma, Geri og Mel C voru hinsvegar kampakátar og leiddust allar saman og leyfðu ljósmyndurum að mynda sig.
Kannski ekki skrítið að trýnið á Victoriu sé upp því hún er sú eina þeirra sem hefur komist á hinn svokallaða A lista fræga fólksins og spókar sig með súperstjörnum í Hollywood. Hún telur sig mögulega tilheyra öðrum flokki frægðar en stallsysturnar úr Spice Girls.
Hér að neðan getur þú svo séð kryddpíurnar í góðum gír á pressukvöldinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig