Það eru án efa margar stúlkur sem væru til í að vera í sporum Kristen Stewart, hún á farsælan kvikmyndaferil að baki þó hún sé aðeins 22 ára gömul og er með einum heitasta leikara Hollywoodborgar sjálfum Robert Pattinson.
En samkvæmt tímaritinu People eru vandræði í paradís; Þar stendur skrifað að Kristen hafi haldið framhjá Robert með leikstjóranum Rubert Saunders en hann leikstýrði Kristen í “Snow White And The Huntsman”.
Kristen er að sögn niðurbrotin, þetta voru mistök sem áttu ekki að gerast og algjör dómgreindarskortur af hennar hálfu. Ein heimild segir að þetta hafi ekki verið framhjáhald heldur bara “skot”, Kristen sé góð manneskja sem hafi tekið ranga ákvörðun.
Rubert er giftur fyrirsætunni Liberty Ross og eiga þau tvö börn saman.
Myndir náðust af Kristen og Rubert þann 17.júlí síðastliðinn og að sögn sjónarvotta gátu þau ekki látið hvort annað í friði. Þau byrjuðu þó ekki að vera saman á meðan að tökum á Snow White stóð.
Kristen sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún viðurkenndi verknaðinn og sagðist vera afar miður sín yfir þessu atviki og niðurbrotin yfir því að hafa sært þá sem eru nálægt sér og þó sérstaklega Robert – hún elski hann og virði.
Rubert gaf einnig frá sér yfirlýsingu og í henni kom meðal annars fram að hann sé einnig miður sín yfir því að hafa sært fjölskylduna sína, fallegu konuna sína og börn þeirra-hann elski þau af öllu hjarta og biður til Guðs að þau geti komist yfir þetta.
Ekkert hefur komið fram um hvort Robert og Kristen séu enn saman en þau sáust síðast saman á Teen Choise Awards.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig