Það er nóg að gera hjá leikkonunni Kristen Stewart þessa dagana en hún er að kynna tvær myndir – lokamynd Twilight seríunnar og “On The Road”.
Kristen mætti í svörtum buxum og hvítum topp sem beraði magann á henni og óhætt er að segja að daman er í verulega góðu formi! Mörgum þótti þó klæðnaðurinn heldur sérstakur þó aðrir hafi verið sammála um að hún hafi borið hann vel.
Það sem mér þykir þó mest truflandi er förðunin. Augun stífmáluð og afar dökk ásamt því að hún ber dökkan varalit. Hún er mun flottari með minni förðun, það hefði verið skárra ef hún hefði verið með ljósari lit um varirnar -þá hefði heildarútlitið komið mun betur út. Eða hvað…?
[poll id=”56″]Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig