Leikkonan Kristen Stewart hefur sent Rob textaskilaboð, hringt grátandi og skilið eftir skilaboð á talhólfinu hans.
Rob gaf víst undan og fór fyrrverandi parið að tala saman um síðustu helgi. Rob er þó langt frá fyrirgefningu eftir að Kristen særði hann djúpt með framhjáhaldinu. Rob varð afar sár og reiður þegar hann las yfirlýsingu Kristen á netinu en hann var víst síðastur til að frétta af því.
Rob var farið að gruna eitthvað undir það síðasta því að Kristen var allt í einu farin að passa vel upp á símann sinn sem hún var áður frekar kærulaus með. Hún sannfærði Rob um að ekkert væri í gangi en honum ofbýður að Kristen hafi haft sömu tilfinningar til annars karlmanns og til hans.
Náinn vinur þeirra segir að hann sé ekki viss um að þau nái að leysa þessi mál en Rob sé þó það eina sem skipti Kristen máli þessa dagana og er hún miður sín eftir þetta.
Hefði þá bara ekki verið betra að sleppa því að halda framhjá elskunni sinni og halda áfram á beinu brautinni??
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.