Leikkonan Kristen Stewart hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið eftir framhjáhaldið með leikstjóra Snow White…
Nú er komið að kynningu síðustu myndarinnar í Twilight seríunni en myndin er væntanleg í bíó í næsta mánuði og eru frumsýningar og kynningar að fara á fullt hjá Kristen. Hennar fyrrverandi, Robert Pattinson, mun einnig slást í för með henni til að kynna myndina.
Í viðtalinu segir Kristen meðal annars frá því að henni finnist oft erfitt að halda “kúlinu” innan um fólk. Hún segist vera afar klaufaleg og eigi erfitt með að meðhöndla frægðina.
Þú þarft að vera svona og hinsegin þar sem þú ert “fræg” en henni finnst stundum skrýtið að lenda í aðstæðum með öðru frægu fólki. Þá segist hún ekkert vita hvernig hún eigi að haga sér í kringum þau og reynir að missa ekki einhverja vitleysu út úr sér.
EN af öðrum fréttum af parinu fyrrverandi þá lét systir Roberts hafa það eftir sér að hann myndi aldrei tala við bróðir sinna aftur ef hann tæki Kristen til baka eftir það sem hún gerði honum.
Já það er ekki alltaf sældarlíf að vera fallegur og frægur í glysborginni….
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig