Blekið var varla þornað á brúðkaupspappírunum þegar Kim Kardashian skildi við Kris og sá að hún hafði gert stór mistök.
Kim og Kris voru ekki búin að þekkjast lengi þegar þau gengu upp að altarinu. Brúðkaupið var rándýrt og fékk mikið áhorf en að sjálfsögðu var sýnt frá brúðkaupinu í raunveruleikaþættinum.
Þátturinn Kourtney and Kim take New York fékk hinsvegar enn meira áhorf þegar hann fór í loftið en þá var orðið opinbert að Kim væri að skilja og að sjálfsögðu vildi pöpullinn fá að sjá aðdragandann að skilnaðinum.
Núna vill “momagerinn” Kris Jenner hinsvegar enn meira! Hún þrýstir stanslaust á Kourtney og Scott að gifta sig til þess að auka áhorf og að sjálfsögðu fá meiri peninga! Scott hefur sést í skartgripabúðum að skoða demanta og orðrómur er á kreiki að hann muni biðja Kourtney á næstunni. Saman eiga þau tvö börn en Kourtney hefur aldrei farið leynt með það að hún sé ekki tilbúin að giftast og muni hugsanlega aldrei gifta sig.
Kris stjórnar Kardashian/Jenner klíkunni með harðri hendi og fær yfirleitt sínu framgengt.
Stóra spurningin er hvort Kourtney vilji stórt brúðkaup eins og systur sínar Kim og Khloé en Kourtney hefur verið þekkt fyrir það að vera með hógværari smekk en þær þegar kemur að veisluhöldum og er ekki mikið fyrir að vilja vera ein í sviðsljósinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig