Hrekkjavakan er nýafstaðin en Hollywood stjörnurnar voru að sjálfsögðu komnar í Hrekkjavökugírinn fyrir löngu.
“Momagerinn” Kris Jenner, sem er móðir Kardashian systranna, ákvað að skella sér í Wonder Woman búning og Twitta í kjölfarið mynd af sér í búningnum. Ekki vildi betur en svo að það sást í hægri geirvörtuna á Kris en hún fór í aðra brjóstaaðgerð ekki fyrir svo löngu síðan til að endurnýja fyllingarnar sínar og lyfta og laga.
Þegar hún uppgötvaði að það sást í “nibbuna” eyddi hún myndinni út en Khloé ákvað að stríða mömmu sinni eilítið, setti myndina á Twitter hjá sér og skrifaði undir myndina: “That´s my mom” eða þetta er mamma mín!
Systurnar eru þekktar fyrir það að gera mömmu sinni lífið leitt með stríðni og Kris er reyndar líka þekkt fyrir það að reyna að vera yngri en hún er og hefur viðurkennt það að henni finnist líkaminn sinn var að bregðast sér á gamalsaldri en miðað við myndina þá held ég að henni finnist hún vera nokkuð “fabúlöss”.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig