Kris Humphries á von á barni ef hans fyrrverandi er að segja satt og barnsmóðirin er ekki Miss Kim Kardashian heldur sú sem hann var að deita áður en að þau giftu sig og skildu og í miklu drama.
Mila Sinanaj er snót sem hann hafði verið að hitta áður en Kim kom til sögunnar og hann hefur greinilega leitað sér huggunnar hjá henni eftir skilnaðinn. Hún staðhæfir núna að Kris sé faðir barnsins hennar – en daman er komin þrjá mánuði á leið.
Mila vill hinsvegar ekki sjá Kris í uppeldi barnsins því að hún er handviss um að hann sé búinn að tala illa um samband þeirra á bakvið hana!
Þetta gæti spilað stórt hlutverk í skilnaði Kris og Kim. Hann var að eigin sögn gersamlega niðurbrotinn maður og heimtar háar skaðabætur vegna skilnaðarins en það að hafa barnað aðra í millitíðinni gæti veikt stöðu hans gríðarlega.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig