Nýjustu fregnir herma að Kourtney og Scott séu loksins trúlofuð eftir fimm ára samband.
Scott var að skoða trúlofunarhringi fyrir skemmstu og ég skrifaði um það hér að “momagerinn” Kris Jenner væri að þrýsta á parið að trúlofa sig til að hún gæti haldið veglegt brúðkaup — sem yrði að sjálfsögðu hluti af raunveruleikaþætti þeirra.
Kourtney og Scott eru búin að vera í rómantísku fríi í París og samkvæmt slúðurmiðlum vestanhafs og frænku Scott þá er parið trúlofað og alsælt með lífið.
Þau eiga tvö börn saman og hafa verið saman í fimm ár en Scott hefur iðað í skinninu undanfarin ár að fá að ganga að eiga sína heittelskuðu og samþykkti meðal annars að eignast með henni annað barn ef hún myndi giftast sér.
Scott hefur beðið eftir rétta augnablikinu til þess að biðja Kourtney en rómantíkin hefur svo sannarlega legið í loftinu í París og Scott hefur skellt sér á skeljarnar.
Tilvalið!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig