Ekki er öll vitleysan eins í þessum heimi og það er margt sem fólk gerir til að fá smá athygli í Hollywood.
Fullorðinsmyndaleikkonan Sidney Leathers komst nýlega í fréttirnar fyrir að hafa stundað dónalegar skilaboðasendingar í síma þingmannsins Anthony Weiner. Þessum skilaboðum svaraði hann svaraði af miklum móð með þeim afleiðingum að þingmaðurinn varð að segja af sér þegar upp komst.
Nú ætlar þessi unga kona að fara í aðgerð á skapabörmum sem er svosem ekki í frásögur færandi fyrir starfsmenn í hennar geira, nema það að hún ætlar að bjóða umframhúðina til sölu á Ebay. Ok?!
Aðgerðin fer fram í næstu viku og það er læknir að nafni Neal Handel sem ætlar að framkvæma hana en hann býr og starfar í Santa Barbara í Kaliforníu.
Leikkonan þarf að borga um eina milljón króna til læknisins sem þykir mjög fær á sínu sviði. Enn hefur ekki komið fram hvað hún telur lágmarksupphæð fyrir barmahúðina en við fáum víst að komast að því þegar uppboðið fer í gang því slúðurvefurinn TMZ ætlar að fylgjast grannt með málinu fyrir okkur.
Herregud!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.