Emmy verðlaunahátíðin var haldin í gærkvöldi þar sem sjónvarpsþættir og stjörnur þeirra voru heiðraðar.
Sjónvarpsþátturinn Homeland kom sá og sigraði í flokknum bestu dramaþættir og Claire Danes hlaut einnig verðlaun sem besta leikkonan en þátturinn fékk samtals sex verðlaun. Modern Family fékk verðlaun sem besti gamanþátturinn og Julie Bowen fékk verðlaun sem besta leikkona í gamanþáttum, þátturinn fékk fjögur verðlaun samtals.
Hér er heimasíða hátíðarinnar þar sem hægt er að sjá öll úrslitin en hér að neðan er myndasafn með Hollywood dömum sem mættu í sínu fínasta pússi á hátíðina.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig