Það hefur vakið gríðarlega athygli að undanförnu hvernig ‘Staupasteins’ leikkonan Kirstie Alley er búin að missa um 45 kíló…
… eins vakti það athygli að þessi sextuga kona væri komin niður í stærð 4 þegar útlit hennar bendir til annars.
Ofursnyrtipinninn Tim Gunn úr Project Runway gekk í málið og bar saman nokkra kjóla og stærðir þeirra m.v. útlit og mál Kirstie Alley.
“Það er ákveðið vandamál í gangi hjá konum sem ég kalla blekkingarleikinn um stærðirnar. Í hégóma sínum ljúga konur til um stærðina, segjast vera kannski 4 þegar þær eru í raun í 6 eða 8,” sagði Tim og útskýrði mál sitt betur:
“Ég gerði könnun þegar ég var hjá Parsons. Við tókum nokkra kjóla í stærð 8. Einn frá 1980, annan frá 1990 og þriðja frá árinu 2000. Munurinn á þessum kjólum var í kringum tíu sentimetra í mittismálið. Kjólarnir hafa einfaldlega stækkað!”
Tim heldur því fram að Kirstie sé í raunstærð á milli 8 og 10.
“Það breytir því samt ekki að hún lítur stórkostlega út! – Fólk er bara allt of upptekið af fatastærðunum.”
Sjálf er Kristie alsæl. Segist vera aftur í ‘elementinu’ sínu og að hún hafi alls ekki áttað sig á því hvernig hún var orðin áður en hún fór í að léttast.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.