Raunveruleikaþáttasysturnar Kourtney og Kim Kardashian hlutu verðlaun sem kallast lykilinn að Miami á dögunum.
Þær eru enn við tökur á þættinum sínum “Kourtney and Kim take Miami” en ljúka áður en að jólastressið byrjar.
Systurnar hlutu lykilinn vegna vinsælda þáttarins og vildi bæjarstjórinn veita þeim viðurkenningu fyrir að taka þáttinn upp í Miami og auka á vinsældir ferðamanna/papparassa/forvitniskráka í Miami og svo framvegis. Kim og Kourtney voru að sjálfsögðu alsælar með heiðurinn og tvittuðu að sjálfsögðu í tilefni dagsins, Kim sagði þetta á Twitter síðunni sinni:
“Er að fara að fá lykilinn að borginni, þvílíkur heiður! Takk Norður Miami!”
Já það virðist vera alveg sama hvað þær systur gera eða segja, flest sem kemur frá þeim selst gífurlega vel og virðast vinsældir fjölskylunnar ekkert vera að dvína.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig