Kim Kardashian og co eru að njóta síðustu daganna á Miami en þær systurnar, hún og Kourtney eru að taka raunveruleikaþáttinn sinn upp og fer tökum senn að ljúka.
Kim segir á blogginu sínu að hún hafi ekki þorað að fara í bikiní þegar hún flutti til Miami fyrir tveimur mánuðum síðan, hún var búin að bæta töluvert á sig og vildi hylja sem mest því hún var ekki sátt við það hvernig hún leit út á sundfötum.
Síðan hefur hún misst um 5 kíló og henni tókst það með því að hreyfa sig á hverjum degi ásamt því að passa mataræðið. Henni líður aftur mjög vel í eigin líkama núna og hefur lært að njóta þess að vera með línurnar sínar fögru.
Kim segir að það sé samt sem áður mjög mikilvægt að hafa gott stuðningsnet í kringum sig þegar maður ætli sér að ná árangri. Vinir hennar og fjölskylda hafa stutt hana og hjálpað henni og besti vinur hennar, Jonathan, hefur verið líkamsræktarfélaginn hennar og hvatt hana áfram þegar hún er löt en Kim tekur undir orð margra sérfræðinga sem hvetja mann til að hafa góðan félaga með á æfingar.
Kim byrjaði með Kanye West fyrr á árinu og að hennar sögn fór hún að bæta á sig þegar þau byrjuðu saman en henni leið svo vel í sambandinu og var á fullu að ferðast á milli staða og borða góðan mat, einfaldlega njóta lífsins með nýja kæró. Þegar hún fann að henni leið ekki vel með að vera búin að bæta á sig þá ákvað hún að setja æfingarnar aftur inn á dagskipulagið og líður betur núna en nokkru sinni fyrr.
Kim sýnir það og sannar að það eina sem dugir er að hreyfa sig og hugsa um það sem maður setur ofan í sig – þetta eru engin geimvísindi, það er ljóst!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig