Kim Kardashian finnst EKKI leiðinlegt að taka myndir af sjálfri sér og skella þeim síðan inn á Twitter.
Kim sem, hefur bætt á sig um tíu kílóum eftir að hún fór að deita rapparann Kanye West, er komin í hörkuátak eftir að kæró sá hvert stefndi -en hann vill sko ekki eiga kærustu með of mikið af aukakílóum í eftirdragi. Kim var töluvert grennri fyrir um einu og hálfu ári en síðan hefur hún meðal annars gift sig og skilið á skömmum tíma og eins og margir vita er auðvelt að grennast eða fitna hratt beint eftir skilnað.
Myndin sem Kim setti af sér á Twitter er af henni sjálfri í gráum víðum joggingbuxum og svörtum íþróttatopp. Kim skrifaði við myndina “ég vill bara vera í joggingbuxunum allan daginn”.
Ekki varði sú tilfinning lengi því Kim var komin í níþröngar gallabuxur seinna sama dag ásamt því að vera í þröngum leðurtopp við þær og að sjálfsögðu háum og támjóum hælaskóm.
Það hefur verið ansi mikið að gera hjá Kim undanfarið en hún og Kanye eru nýkomin heim út rómantískri afmælisferð á Íltalíu. Þau voru svo varla lent þegar þau mættu á Angel Ball á mánudagskvöldið þar sem Kim var glæsileg í bláum og að sjálfsögðu flegnum kjól.
Svo er það bara stóra spurningin – hvenær ætlar hann að biðja hennar? Það bíða margir spenntir.
________________________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig