Kim Kardashian (33) og Lindsay Lohan (27) voru saman á djamminu í Miami í fyrradag en stöllurnar voru þar staddar á LIV klúbbnum á Fontainebleau hótelinu.
Þetta er sannarlega ekki í fyrsta sinn sem þessar drottningar hittast því þær hafa verið kunnugar hvor annari frá árinu 2006. Meira að segja starfaði Kim sem stílisti Lohan árið 2011 en hún vann við þetta áður en hún varð sjálf fræg raunveruleikaþáttastjarna.
Fyrr sama kvöld höfðu Kim og Kanye verið saman á Delano klúbbnum þar sem þau hittu fyrir aðra fræga gesti, meðal annars Roberto Cavalli sem Kim sýndi mikinn áhuga. Sjónarvottar sögðu þau hafa haldist í hendur allt kvöldið og verið mjög góð og blíð við hvort annað. Sjálf mun Lindsay ver að hitta karlfyrirsætu sem starfar fyrir Ralph Lauren þó ekkert liggi fyrir í þeim efnum eða sé staðfest.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.