Rob Kardashian varð 25 ára gamall síðastliðinn laugardag og var afmælinu fagnað á 10 OAK Nightclub í Las Vegas.
Kim Kardashian eldri systir hans fagnaði með honum ásamt móður þeirra Kris Jenner. Yngri systur hans Kylie og Kendall Jenner voru einnig með í fögnuðinum en fóru snemma upp á herbergið sitt enda ekki orðnar nógu gamlar til að vaka frameftir.
Kim Twittaði eins og enginn væri morgundagurinn allan daginn og í partýinu en Khloe systir hans sendi kveðju á Twitter en hún komst ekki í partýið, Kourtney elsta systirin var einnig fjarri góðu gamni en hún gengur núna með sitt annað barn.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig