Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian birti mynd af sér á Instagram síðunni sinni þar sem að kúlan hennar sást greinilega, Kim skrifaði fyrir neðan myndina “Well hello there” #PoppedOuttaNowhere eða Nei halló þarna #birtistuppúrþurru.
Kim hræðist ekkert meira núna en að fitna of mikið á meðgöngunni, hún hefur sést fara seint á kvöldin í ræktina en viðurkennir þó að hún sé afar þreytt.
Kim tekur þessu svo alvarlega að hún hefur misst svefn vegna þess að hún hefur verið að gera “hálsæfingar” til þess að fá ekki undirhöku en það er eitthvað sem hún vill ekki að gerist.
Daman er búin að vera mikið á ferðinni undanfarið og er nýkomin heim frá París þar sem hún eyddi tíma með Kanye.
Kim var í viðtali hjá Jimmy Kimmel um daginn og þar sagði hún að hún myndi ekki láta barn hennar og Kanye vera í raunveruleikaþættinum en systir hennar Kourtney hefur sýnt bæði börn sín í þáttunum. Kim segir að hún ætli að leyfa barninu sjálfu að ráða hvort það vilji vera hluti af þættinum eða ekki þegar það verður orðið nógu gamalt…
…síðan er stóra spurningin hvort hún standi við þessi stóru orð eða hvort að peningar muni spila eitthvað hlutverk með ákvörðun hennar að lokum?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig