Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og rapparinn Kanye West eiga von á sínu fyrsta barni! Rapparinn tilkynnti þetta á tónleikum sínum nýlega og gleðin skein í andliti hans þegar hann sagði frá tíðindunum.
Kanye var í miðju lagi þegar hann bað um að tónlistin yrði stöðvuð og bað fólk að klappa fyrir barnsmóður sinni eða “baby mama” eins og hann orðaði það.
Kim er komin tólf vikur á leið og systur hennar eru að springa úr spennu yfir óléttunni og Twittuðu þegar Kanye var búinn að tilkynna þetta. Khloe sagði að það væri gríðarlega erfitt að halda leyndarmálum í fjölskyldunni en allir meðlimir Kardashian famelíunnar hafa eflaust vitað þetta, Kourtney sagði að von væri á öðrum litlum engli og hún væri gríðarlega spennt yfir fjölgun fjölskyldunnar.
Kim hefur aldrei farið leynt með það að henni langi í barn og draumur hennar er loksins orðinn að veruleika, árið 2013 verður greinilega fullt af gleði og nýjum áskorunum hjá parinu góða.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig