Kris Humphries fyrrverandi eiginmaður Kim Kardashian ætlar ekki að flýta sér að skrifa undir skilnaðarpappírana og vill frekar draga allt á langinn bara til þess að særa Kim.
Kris er í miðri körfuboltavertíð núna og hefur því engan tíma til þess að mæta í réttarsal til þess að útkljá mál þeirra tveggja. Hann var mjög reiður þegar hann frétti að Kim ætti von á barni með Kanye og ákvað að tala málin í sínar hendur með því að tefja skilnaðinn svo að Kim verði ennþá löglega gift honum þegar hún eignast fyrsta barn sitt með Kanye West.
Kim er í miklu uppnámi vegna alls þessa en hún var yfir sig ástfangin af Kris til að byrja með en hlutirnir gengu of hratt fyrir sig og hún sá að lokum að þau gengu of hratt í hjónaband og áttu enga samleið. Þau höfðu ekki sömu afstöðu gagnvart því hvar þau ættu að búa eða bara yfir neinu yfir höfuð, voru sífellt ósammála og stöðugt að rífast undir lokin þar til að Kim fékk nóg og sótti um skilnað.
Kris hefur farið fram á himinháar upphæðir frá raunveruleikastjörnunni en Kim gefur ekkert eftir og gerir allt til að halda mannorði sínu hreinu. Þá er bara að bíða og sjá hvað gerist í framhaldinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig